Mér leiðist og er ég að bíða eftir fleiri verkefnum, búin með það skilað var inn.
Gleymdi ipodinum mínum í morgun, af því ég var með hann í gær þegar ég fór á göngu

Labbaði heila 9km, má alveg gorta mig af því ef ég vil

Árið byrjar alveg mjög vel

Ég byrjaði í bootcamp á mánudaginn og hélt að ég myndi láta lífið seinna um daginn sökum lítils svefns og stress daginn og nóttina fyrir. En prófin í 1.tímanum gengu bara drullu vel og var árangurinn mun betri en þegar ég fór í booty í okt 2007. fór svo í mælingu eftir tímann og það kom bara ágætlega út líka, var búin að lækka um 2% í fitu síðan ég hætti síðast, og eitthvað 4% síðan ég byrjaði í okt 2007, var bara sátt við það.
Nú þamba ég vatn eins og mér sé borgað fyrir það. Er á einhverjum brennslutöflum sem ég held að mér sé svoldið óglatt af, en vonandi eru þær að virka. Ég er dofin í löppunum og á eftir að fá svo miklar harðsperrur á morgun að það verður geggjað!

Ég er líka að kafna úr hita og byrjuð að fá harðsperrur í lærin

Á pantað flug suður á föstudaginn eftir vinnu og til baka um miðjan dag á sunnudaginn... Ætla í tjill og kíkja í ikea hvort ég finni mér kannski ný húsgögn, því það er kreppa og um að gera að eyða helling í dót sem maður þarf ekki

Ég er svöng! þó ég sé búin að borða hrökkbrauð, 1/2 papriku, skyrdrykk, próteinbar og hafragraut og epli! En fæ fisk á deiti með Vilborgu minn í mötuneyti Alcoa

Finn fáar fleiri tilgangslausar línur til að skrifa hér. Fékk 100 kall áðan, því "veðmál" við einn í vinnunni að ég hætti að drekka framað áramótum og átti þá að fá 50kr... græddi bara 100% meira en ég átti að fá, heppin ég...
Og já svona uppá skemmtun, þá er ég að dreeepast í öxlinni og kemst ekki í rannsóknir eða aðgerð fyrr en kannski í fyrsta lagi í febrúar, sjibbíkóla!! En ég bít á jaxlinn og bölva helling þangað til og ef ég verð alveg dauð þá fæ ég aðra sterasprautu. En allir að vona það besta fyrir mig, að þetta lagist bara

Kem vonandi með annað álíka uppörvandi og skemmtilegt blogg um tilgangslausa hluti bráðum
Kæææær kveðja
Herdís sem er reyndar ofurhress og kát