|
Herdís Hulda
Er 88 módel, Eskfirðingur í húð og hár og bý á Esk og vinn hjá Alcoa.
|
13.10.2009 13:14:56 / herdis
Gúddag alle sammen! Jæja þá er brjálað að gera alveg hreint, tíminn FLÝGUR áfram! Það er kominn 13.október! Ég á afmæli eftir örfáa daga, og verð þá komin á þrítugsaldurinn ! Finn fyrir óþarfa hrukkumyndun, en til að sporna gegn henni ætla ég ekki að mála á mér andlitið á hverjum degi, því ég er svo náttúrulega falleg! Í afmælisgjöf langar mig í hrukkukrem og detox hjá Jónínu Ben.. Skólinn, já blessaður skólinn! Það sem liggur fyrir er BARA próf á morgun í vöðva og hreyfifræði þar sem ég þarf að kunna alltof mikið og allt utanbókar, svo er það að horfa á 3,5 tíma fyrirlestur í næringarfræði og gera 2 verkefni uppúr honum fyrir föstudag, einnig að gera seinni hluta af hópverkefni í Lífeðlisfræði fyrir sunnudag oooog próf í lífeðlisfræði eftir viku og þá annar fyrirlestur og verkefni í næringarfræðinni. Æj og já inn á milli er ég svo að keppa í sterkasta kona Íslands. Pís of pæj, ekkert að gera (MJÖG MIKIL KALDHÆÐNI) Ég er að kafna úr stressi og álagið að drepa mig. Ég hlakka samt tussu mikið til að fara að keppa, það verður dúndur gaman, Auja og Steinþór ætla að koma suður að hvetja mig  og auðvitað Goggi þjálfari. Keppnin hefst kl 14, laugardaginn 17.október og er í Smáralindinni, það verður keppt í matsjó greinum, ég er búin að prufa nokkrar en því miður ekki getað æft eins og hinar gellurnar  En þetta er bara gaman og verður bara stuð. Laugardaginn 24.okt er ég svo að keppa í kraftlyftingum... Þegar þetta er allt búið þá er það bara harkan sex og brenna og grennast.... Þetta er búin að vera fín "pása" Já gott í bili....
»
25.09.2009 14:19:02 / herdis
Vandró að finna þetta aftur.
Update: * Enn að vinna hjá alcoa * Er að læra ÍAK einkaþjálfara hjá Keili * Er að fara að taka þátt í Sterkasta kona Íslands 17.október 2009 * Er að fara að keppa á bikarmóti ÍKF Metal 24.október 2009 * Borða mikið, æfi þungt... * Ætla að ná upp þoli eftir mót og verða awesome fyrir jól * Er enn of Awesome...
»
22.07.2009 11:39:48 / herdis
Já mikið er nú langt síðan að ég skrifaði eitthvað :/ og enn lengra síðan það var eitthvað merkilegt. Nú er staðan sú að ég er í fjarþjálfun hjá Röggunagla (www.ragganagli.blog.is) Ég er að breyta mataræðinu og læra að borða rétt  Þetta er ágætt, ég er að borða meira ef eitthvað er, bara réttara. Próteinsjeikar hægri vinstri  Að reyna að minnka aðeins líkamsfituna og styrkja mig. Borða 1x í viku svindlmáltíð og svindl um kvöldið sama dag. Langaði pínu að grenja til að byrja með, en þetta er challenge! Það kostar blóð svita og tár að ná fitu af sér og byggja upp vöðva. Ég keppti á Sunnumótinu á Akureyri 11.júlí. Það var push and pull kjötmót, konu kraftlyftingamót. Oooog í framhaldi af því ætla ég að keppa á bikarmóti ÍKF Metal. Þá þarf ég reyndar að læra hnébeygju, en það kemur! Langar að taka 150 kg í deadlift (réttstöðulyftu) á því. Mjög gott að vera komin með langtíma markmið, þetta verður sumsé 24.október nk. Betra en að vera stefnulaus í ræktinni, farandi eftir prógrami en stefna ekki að neinu. Ég er að pæla að skrá mig í eitthvað smá fjarnám í haust. Bæta bara ofaná stúdentinn. Og í framhaldi líklegast fara í eitthvað nám á næsta ári, og það kemur þá bara í ljós hvað það verður  nú verð ég bara að fara að safna pening til að borga hvað sem það verður. Update búið
»
25.05.2009 10:30:06 / herdis
Mjella...
Sporðdreki: Sporðdrekinn er upptekinn við að galdra fram áætlun sem á endanum getur af sér velgengni og velmegun. Notaðu það til að skilja hvað ástvinir þínir vilja.
Vandræðalegt hvað ég skil ekkert hvað þetta þýðir...
Fréttir:
Puttarnir á hægri hendi eru stærri en á vinstri... Losna við lykkjuna eftir viku og hætti á stanslausum túr! Karlmenn eru vesen! Ragnheiður fór í nokkra daga frí frá mér, ég lifði það af. Er að fara að fá cintamani jakka(Lísa)... Er dauð í öxlinni... Ætla að prufa að kaupa mér rándýrt Astazan og ath hvort það sé eitthvað ofaná brauð. Er búin að vera ýkt dugleg í ræktinni og að hreyfa mig á hverjum degi... Er búin að vera edrú í rúmt hálft ár... Búin að bæta hlaupatímann minn massa mikið... Skodinn minn er enn fallegastur, á æðislegum sumardekkjum... Ég fer í 2gja vikna sumarfrí eftir mánuð, það verður vírd, nenni varla...
Ég er osom og búin að ná af mér 10 kg, þyngdist svo aftur um 1 og hálft rsum, af því ég var að lyfta og éta mikið, en það er farið aftur... sem er gott og gagnlegt. Mig langar í ljós, því ég er hvítur skítur sem situr á skrifstofu allan daginn.
Hata tollinn, hann tók brennslutöflur sem ég pantaði...
Fékk osom íþróttabuxur úr bodybuilding.com... þægilegastar í heimi. Ég er ekki pirruð til tilbreytingar, þó að allt sé í semi fokki í vinnunni, því enginn skilar inn og svona, þá lendi ég í stressi í dag... Lyftingaræfing í dag, náði bara 1 æfingu í síðstu viku. Ætla að prufa að bæta sippi og sprettum inná milli, Hrefna var að benda mér á það Vantar ný markmið... er ekki að stefna að neinu einu beint nema að viðhalda og gera bara eitthvað á hverjum degi. Skemmtilegra að hafa markmið með verðlaunum  Enn gaman að ég skyldi skrifa... er alveg uppljómuð eftir það.. -Herdís
»
19.04.2009 23:26:45 / herdis
Stjörnuspá dagsins í dag:
Sporðdreki:
Nú verður þú að bretta upp ermarnar og ganga í þau verk, sem þú hefur
látið sitja á hakanum. Nú þegar þú þarfnast hennar réttir enginn fram
hönd. Vertu frekar glaður yfir því sem þú átt. .... Og jújú, það bíður mín of mikið í vinnunni, ég þreif rúður í dag sem sat á hakanum... Þetta með hendina er satt, enda segir einhverstaðar: sjálfs er höndin hollust! Ooog ég var að kaupa bikiní og er glöð yfir því að eiga bíl og fallega Vagabond skó... Ég er með harðsperrur og fékk sinadrátt í magann í fyrradag, það var vandræðalegt. Ég er á 14 degi í kvefi held ég og stífluð og raddlaus... Og búin að rífa upp ökklann og er hölt. Ef einhvern langar að gefa mér brjóstastækkun þá væri það vel þegið. á líka 2 buxur sem eru orðnar alltof stórar á mig, og búin að kaupa 2 nýjar dieselbuxur, brjóstin mín eru orðin of lítil og passa ekki í brjóstarhaldarana mína, þurfti líka að kaupa nýja svoleiðis, þetta er orðið dýr pakki.. keypti mér bikiní áðan sem er fjólublátt og skræpótt með blómum, en stór brók sem hylur helling og púðar í haldaranum! á aldrei eftir að sjást í því innan um fólk samt. Þó ég væri veik náði ég að klára þá 3 lyftingardaga sem ég þurfti. Svo ég byrja á viku 2 á morgun og framundan eru 3 lyftingardagar og 3 brennsludagar  ætla að sofa í flíspeysu og henda kvefinu og hálsbólgunni út... Er mætt í ruglið.... Góða nótt
»
08.04.2009 11:46:52 / herdis
er ömurlegur "bloggari" ef það skyldi kalla... Páskafrí eftir 4 klt... gleði gleði. bleh  Sporðdrekamerkið er vondur, stingandi sporðdreki, eitrað meindýr, undirförult og hættulegt sníkjudýr myrkursins. ALDREI treysta sporðdreka. Sporðdrekar treysta þér ekki og þeir drepa þig án þess að hugsa sig um tvisvar. Ef þú ferð vel með þá gætu þeir hugsanlega orðið þokkaleg gæludýr - ef þeir eru í búri auðvitað. Sporðdrekinn læðist um allt óséður, kemst inn í hugsanir þínar og drauma og stelur þeim eins og þjófur um nótt. Ertu ekki hrædd(ur)? Sporðdrekinn stjórnast af Plútó sem er guð kjarnorkusprengjunnar.
»
23.02.2009 16:55:37 / herdis
Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa. Það hefur margt gerst síðan síðast, hún Hrönn ástin kvaddi heiminn, og sakna ég hennar mjög mikið. Hún var alltaf svo góð við mig, og öll barnabörnin frá Brimnesi. Á svakalega margar góðar minningar um hana, og söknuðurinn er mikill en minningin er björt... Daglega lífið er voðalega svipað, í dag eru 100 dagar sem ég hef verið edrú  Vika 8 í bootcampinu hófst í morgun, og gengur það ágætlega, er búin að vera að svindla smá en á móti hef ég verið dugleg að hreyfa mig. í gær fór ég og fékk Védísi mína lánaða og fórum við frænkur í sund og vorum að gera bombur og svona  ótrúlega gaman hjá okkur. Svo vorum við að gera tilraunir í eldhúsinu hérna heima, með matarlit og dóti og kíktum svo á Gretti ofurstóra köttinn hans Þórhalls, og svo rotaðist ég snemma og hef aldrei verið svona þreytt þegar ég var að fara í BC, en ég og Raggs vorum auðvitað Osm þar... Já, uhh farin til Ragnheiðar, nakin í gúmmístígvélum, að skreppa á göngu... og ætla svo að vinna í kvöld og hafa stuttan dag á morgun  pís át  Herdís
»
09.02.2009 10:54:13 / herdis
Daginn, Hvað er að frétta?? Rólegheit, ekki neitt að frétta, hef aldrei neitt að gera þannig séð, þó ég geri fullt! Sl vika var róleg. Var veik á þriðjudag, og er eitthvað að mér í lungnunum, er komin með púst og fór í lungnamyndatöku á fimmtudaginn, bíð núna eftir símtali með niðurstöðunum. Missti úr fyrsta bootcamp tímann á árinu á miðvikudaginn, sökum slappleika. En fór í staðin í ræktina á fimmtudaginn og svo BC á föstudaginn og mætti meira að segja í Höllina í 8 stiga frosti rsum að hlaupa, enda var rassinn á mér freðinn að detta af! Föstudagskvöldið var tekið í rólegheitum, eldaði og svo bara kózýness... Laugardagurinn var líka ágætlega rólegur eftir hlaupin, tók til, ryksugaði, þvoði þvott og straujaði. Kjánalegt að mér finnst gaman að strauja, tók gardýnurnar mínar og straujaði og setti aftur upp, ætla einmitt að taka og setja nýtt á rúmið mitt í dag, líklegast straujað  svo um kvöldið var bara horft á myndir og how i met your mother og seint að sofa og var ekki vakin fyrr en 17:45 í gær:/ Borðaði, fór og gekk bæinn á báða enda og fór svo að sofa rétt fyrir 11 og mætti hress í Bootcamp í morgun. var svo að prufa nýtt próteinduft og kúgaðist og kúgaðist  Hef án grínst nánast ekkert að skrifa um, Rvk á föstudaginn framá mánudag, svo líklegast bara hanga heima alla vikuna milli þess sem ég fer að hreyfa mig eitthvað :/ Spurning að lesa bókina sem ég hef í láni... En er algjörlega tóm..............
»
02.02.2009 09:00:05 / herdis
Já góðan dag. Ég er komin frá RVK, skrapp í stutta heimsókn. En það var voðalega nice og gaman. Fór í búðir, keypti mér nýjar íþróttabuxur, henson, sem voru illa saumaðar og strax komið gat. Glatað! Svo keypti ég mér Vagabond skó, sem eru bláir, helmingur glans og helmingur glimmer, ótrúlega flottir! Og jú keypti gallabuxur í Vila. Mamma eldaði æðislegan mat á laugardaginn, lambasteik með sósu  Og ég fékk mér hamborgara á Stylenum í laugardagshádeginu, mjög gott. Og svindlaði bæði kvöldin og fékk mér prins póló annað kvöldið og kit kat hitt, og bæði kvöldin kókómjólk!... Svo keypti ég twister á KFC handa Jógu Mall, og færði henni í gær þegar ég komst loksins niðreftir. Já bíllinn minn var frosinn fastur í handbremsu uppá Egilsstaðarflugvelli! Og losaðist ekki þó hann var orðinn heitur og ég búin að reyna að skaka honum fram og til baka, þurfti að fá heitt vatn og skvetta á afturdekkin til að losa þetta, en það reddaðist  Var nær dauða en lífi í gær, af því planið mitt um afslöppun og svefn alla helgina tókst ekki  En náði að sofna rétt yfir 10, en vaknaði svo aftur kl 11 til að hengja upp, en þá var pabbi búinn að því:/ Svo ég svaf til 5, og var ekki að meika að vakna og fara í bootcamp. Er með fjandans kvef í lungunum, erfiðara að anda en er ekki með hósta, mjög skrítið. En eftir tímann lét ég Jóhönnu mæla mig og samkvæmt nýjustu mælingum er ég búin að missa 23,5 cm, það sem mælt er er semsé: upphandleggur, axlir, brjóst, mitti, mjaðmir, rass og læri. Og vitaskuld farið meira af sumum stöðum og samkvæmt klípunni er fitan komin í á milli: 20,3% og 22,1%... Þannig hún er á niðurleið og búin að vera í meira en ár  Okt 2007 var hún 31%, 1.des 2007= 28,5%, 5.jan=26.5% og núna = milli 20,3% og 22,1%.... En er ekki búin að léttast svo þetta eru bara vöðvar og það er AWESOME!!!!!!!!!! Er mjög sátt enda er þetta búið að kosta blóð, svita og tár. Núna er það bara að herða róðurinn og halda áfram í Bootay, fara að hlaupa meira og svona, dreg amk ekki úr hreyfingunni. Áfengisleysið er líka ekkert á leiðinni að fara að hætta, enda komnir 3 mánuðir eftir rúma viku - Styttist í bæklunarskurðlækninn  ég krosslegg fingur og vona að ég þurfi ekki í aðgerð, er alveg svakalega stressuð fyrir þessu:/ nóg í bili?
»
28.01.2009 17:47:14 / herdis
Gúten tag meinem freunder. Vá vildi ég myndi eitthvað í þýsku fyrst ég kallast stúdent. Hvað er nýtt hvvaaaað er nýtt. Þorrablótið er búið, það var ææææðislegt  skemmti mér svakalega vel! Og vorum við hver annarri fegurri þar, og ég auðvitað fallegust... Borðaði helling af hákarli og bauð öllum stelpunum í sleik, en engin þáði það (var edrú btw) fór svo heim og tannburstaði og hætti við að bjóða fólki í sleik. Gerði svo fullt á sunnudaginn, tók daginn snemma og þreif og þvoði þvott og hjólaði svo amk 10 km, bæinn fram og til baka og að skiltinu hinum megin, meðan aðrir lágu í þynnku  hmm borðaði mjög mikið af heimatilbúinni pizzu um helgina  og svo tók alvara lífsins við á mánudaginn. Fór í bootcamp á mánudaginn og í dag, og í gær ætlaði ég sko að fara út að hlaupa í góða veðrinu eftir vinnu, eða hjóla... En nei þá átti ég tíma í andlitsbaði hjá Ingunni sem ég var búin að gleyma því ég hélt það ætti að vera á fimmtudaginn, og brunaði þangað, alveg upptjúnuð. Og það var svo mikil slökun að ég var dösuð það sem eftir var af deginum, og fór í staðin í myrkrið út á sveit að skoða stjörnurnar, frekar einhverf, ég veit, en mér er alveg sama því ég sá stjörnuhrap!! Svo var ég að koma úr sundi núna, 1.skiptið í MJÖGMJÖGMJÖG langan tíma sem ég fer og syndi og það var barasta erfitt! hefði varla verið andstyttri í 10km hlaupi! Og synti ég í korter og tók svo 150m áður en ég fór uppúr. Var mikið að hugsa á meðan hvernig ég gat synt 2,5km kannski á sundæfingum hérna í denn... En ætla að reyna að fara amk 1x í viku núna í sund, á meðan ég má ekki lyfta  Langaði að grenja í dag því mig langar svo að lyfta... öxlin er ekki að bjóða uppá það og hangir skítsæmileg á meðan ég er bara í bootcamp. og ég er hætt að horfa á sjónvarp sökum tals um kreppu og pólitík, og ætla að byrja að lesa. Sem er eitthvað nýtt fyrir mér. slíta mig frá tölvunni og fara að lesa. En nýr dagur, ný markmið, gaman gaman... (er búin að gleyma hvað ég ætlaði að skrifa um)
»
22.01.2009 10:18:10 / herdis
Jæja, Eiginlega ekki neitt nýtt. Ég hata mótmælendur svo ógeðslega mikið og langar svo að skjóta þá, því ég hef enga trú á að ný ríkisstjórn geti gert eitthvað betur þar sem þessi hefur staðið í öllu þessu veseni frá upphafi og veit nákvæmlega hvað er í gangi. Finnst það ætti að vera efnt til mótmæla gegn mótmælendum, þar sem þeir sem vilja mega koma og lemja mótmælendurna án þess að vera handtekin! Helvítis fávita fífl. Held að ég hefði betur farið með "ÉG ER AWESOME" skilti þegar ég var í RVK um daginn. Ég er í síma-afvötnun. Síminn minn er niðri í jakkanum mínum og ég verð rétt með hann í hádeginu og set hann aftur þar. Það er óþægilegt að hafa hann ekki! er of háð þessu drasli. Er líka að pæla að vera tölvulaus eftir vinnu. En þá erum við að tala um að það séu 70% líkur að ég verði dáin fyrir 10 í kvöld! Þorrablót Eskfirðinga 2009 er á laugardaginn. Mitt fyrsta blót, og verð ég blá edrú á því og ballinu  Og ég hlakka bara ótrúlega mikið til! er komin með miða í hendurnar og fer með vinum mínum. Keypti ekki nýjan kjól, fer bara í mínum rauða og á eftir að ákveða hvort ég ætli í rauðum hælum eða svörtum pinnahælum... Bootcampið gengur bara vel. Er búin að mæta í alla tímana og er að taka mataræðið í gegn, sem er ekkert skemmtilegast í heimi, en það gengur líka bara mjög vel. Ég er ekki búin að kaupa mér kort í ræktina samhliða, því það er alltof dýrt miðað við að flest brennslutækin eru biluð!! En það eru akkurat þau sem ætti að vera að nota, og geyma lyftingarnar aðeins. En í staðin er ég með stigavél í láni, og reyni nú að fara á hana þá daga sem Bootcampið er ekki, svona meðan veðrið býður ekki uppá að maður sé of mikið úti. Gleymdi mér aðeins í gær með matardraslið, borðaði lax og grænmeti í mötuneytinu hér og svo epli í kaffi og gleymdi að borða til 10 um kvöldið, þar sem ég lenti m.a. í heimsókn, og borðaði þá smá afgans popp og melónu. Ekki hollt, verð skömmuð fyrir það  En hlaupapróf á morgun... ooog svo Reykjavík 30.jan og 13.febrúar!
»
14.01.2009 13:44:14 / herdis
sæll!
enn einn dagurinn kominn... Surpriiiise
Það sem er "nýtt" er t.d. það að ég er Awesome. Ef ég segi þetta við mig þá er ég það. og já ég er líka fegurðardrottning(lagið var að byrja á ipodinum, á réttum tíma það!)Eníveis. Þá er nýja mottóið mitt klárlega tekið upp úr þáttunum How I met your mother: "When I get sad, I stop being sad and be awesome instead. true story!" Svona gengur þetta. Þannig ég ætla að vera bara awesome í staðin fyrir að leiðast eða vera eitthvað neikvætt Um leið og maður segir jákvæða hluti við sig sjálfan þá rætast þeir, þar sem ég ræð þannig líðan minni hverja stund, or something or nothing. Sakna Ragnheiðar síðan í morgun, vorum ekki stíjaðar alvarlega í sundur í Bootcampinu í dag, bara 1 manneskja á milli En í fyrradag var ég færð, fæ smá flashback frá 2.bekk þegar Sunna og Rebekka voru færðar í sundur og Sunna látin sitja hjá Birki og var sko ekki sátt og þau geggjað hörð, og 2 dögum síðar, eða minna, þurfti að færa þau í sundur af því þau samkjöftuðu
En þetta reddast, Rebekka er að koma líka í bootay og held að við getum talað saman án orða, svo ég verð með bæði errrrin mín hjá mér. Sem er æði pæði.
Er búin að vera dúleg að vinna, vinna lengur og allskonar. Búin að eiga 8 edrú helgar í röð!!! Fór til RVK síðustu helgi, það var ágætt... Gaman á laugardagskvöldinu amk bara alltof alltof stuttur tími sem ég hafði! En ég keypti hillur og er núna búin að umturna herberginu mínu.
Og pæling, af hverju er manneskjan sem fer á sjoppuna og kaupir skyr, eða bara yfir höfuð er að borða hollan mat, Skrítna manneskjan sem er í aðhaldi og heilsufrík og eitthvað svona. En manneskjurnar sem eru á sjoppunni og borða nammi og gos og óhollt og þéir sem borða svellfeitan mat og svona... Af hverju eru þær manneskjur eðlilegar og hinar afbrigðilegar... Svo margt skrítið hérna... hmmmm haaaaa... já sæll, ekki það að ég sé að borða öfga öfga hollt, en allaveg í hollari kantinum
Og af hverju fæ ég ekki það sem ég vil og hlutirnir þurfa að vera flóknir? (eða þarf að minnsta kosti að bíða, því ég ætla að fá það sem ég vil múha!!)
OOoooog horfið á How I met your mother þættina, þeir eru LEDGENDARY!!!
pís át hómís...
-Herdís
»
07.01.2009 12:02:02 / herdis
Mér leiðist og er ég að bíða eftir fleiri verkefnum, búin með það skilað var inn. Gleymdi ipodinum mínum í morgun, af því ég var með hann í gær þegar ég fór á göngu  Labbaði heila 9km, má alveg gorta mig af því ef ég vil  Árið byrjar alveg mjög vel  Ég byrjaði í bootcamp á mánudaginn og hélt að ég myndi láta lífið seinna um daginn sökum lítils svefns og stress daginn og nóttina fyrir. En prófin í 1.tímanum gengu bara drullu vel og var árangurinn mun betri en þegar ég fór í booty í okt 2007. fór svo í mælingu eftir tímann og það kom bara ágætlega út líka, var búin að lækka um 2% í fitu síðan ég hætti síðast, og eitthvað 4% síðan ég byrjaði í okt 2007, var bara sátt við það. Nú þamba ég vatn eins og mér sé borgað fyrir það. Er á einhverjum brennslutöflum sem ég held að mér sé svoldið óglatt af, en vonandi eru þær að virka. Ég er dofin í löppunum og á eftir að fá svo miklar harðsperrur á morgun að það verður geggjað!  Ég er líka að kafna úr hita og byrjuð að fá harðsperrur í lærin  Á pantað flug suður á föstudaginn eftir vinnu og til baka um miðjan dag á sunnudaginn... Ætla í tjill og kíkja í ikea hvort ég finni mér kannski ný húsgögn, því það er kreppa og um að gera að eyða helling í dót sem maður þarf ekki  Ég er svöng! þó ég sé búin að borða hrökkbrauð, 1/2 papriku, skyrdrykk, próteinbar og hafragraut og epli! En fæ fisk á deiti með Vilborgu minn í mötuneyti Alcoa  Finn fáar fleiri tilgangslausar línur til að skrifa hér. Fékk 100 kall áðan, því "veðmál" við einn í vinnunni að ég hætti að drekka framað áramótum og átti þá að fá 50kr... græddi bara 100% meira en ég átti að fá, heppin ég... Og já svona uppá skemmtun, þá er ég að dreeepast í öxlinni og kemst ekki í rannsóknir eða aðgerð fyrr en kannski í fyrsta lagi í febrúar, sjibbíkóla!! En ég bít á jaxlinn og bölva helling þangað til og ef ég verð alveg dauð þá fæ ég aðra sterasprautu. En allir að vona það besta fyrir mig, að þetta lagist bara  Kem vonandi með annað álíka uppörvandi og skemmtilegt blogg um tilgangslausa hluti bráðum Kæææær kveðja Herdís sem er reyndar ofurhress og kát
»
30.12.2008 18:58:07 / herdis
Eins og það standi einhver fyrir aftan mig.... Creepy tilfinning, þar sem ég sit ein í vinnunni. Er að klára, og blogga því stundum þarf ég að bíða í smá stund:/ sem er löng. Ég verð að vinna lengur því ég er að klára dót, fór úr vinnunni áðan, í ræktina, til að hreinsa hugann og koma endurnærð og halda áfram. Því ég ætla að klára þetta, sama hversu lengi ég verð  Er á 1 brennslutöflu og kaffibolli nr ca 4 í dag, samt bara nr 2 síðan kl 4... Undarlegar pælingar í gangi meðan ég sit hér alein, er að hlusta á öfgalega tónlist, og þori ekki að syngja með því þá kemur pottþétt einhver inn  Megintilgangur þessarar færslu var hins vegar að nýta tímann og bjóða landsmönnum Gleðilegs nýs árs, og vona að þeir njóti nýja ársins sem við erum að fljóta inn í eftir rúman sólahring (og ég er ekki að átta mig á því!!) Kannski ég geri smá endurminningar ársins, á meðan ég loka verkskýrslum, þ.e. meðan ég þarf að bíða eftir tölvunni, svo það á eftir að taka sinn tíma að skrifa þetta  Fyrsta hökt og bið. 2.janúar 2008 pakkaði ég niður í töskur, henti öllu draslinu mínu inní bíl og sagði pabba að ég væri að flytja suður, sagði það reyndar við hann ca. deginum eða kvöldin áður. Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef gert. Svo ég keyrði í burtu og sendi svo vinum mínum sms þegar ég var komin yfir í Fásk að ég væri að flytja suður og hefði ekki meikað að kveðja neinn, sem var satt, grét heil ósköp næstu dag. Ég fékk vinnu í kvöldstarfi hjá símaveri Securitas og var þar í nokkra mánuði, ég vann herþjálfunarnámskeið í Egilshöll á útvarpsstöð og fór að sækja það, dró Hössa frænda og Írisi frænku með mér. Um 10.janúar fékk ég tímabundna vinnu hjá Ráðningarþjónustunni. ca 15.janúar fór ég í herþjálfun kl 6 um morgun og missteig mig svo heiftarlega að ég ræsti bróður minn út til að skutla mér á slysó. Fékk að vita fyrir ca mánuði að ég Sleit liðband í ökkla, og hefur árið farið í það að finna til í ökklanum. Þann 18.febrúar hóf ég störf sem skráningarfulltrúi forskráningar hjá Umferðarstofu og það var æðislegt starf, frábært fólk sem ég vann með and so on and so on  Sakna þeirra mikið! Mánaðarmótin Feb/mars ákvað ég að fara heim í fyrstu heimsóknina, stelpukvöld og skemmtilegheit voru á laugardeginum. Á sunnudeginum ákvað ég að ég ætla aldrei að fara aftur á hestbak og borða þessi dýr bara! Ég fór á hestbak, á ekki svo gömlum hesti, sem fældist eða eitthvað og rauk með mig og ég vægast sagt flaug af baki, kom amk 2m langt far í götuna eftir mig. Þar var ég bara heppin hef aldrei verið jafn nálægt því að deyja! Það síðasta sem pabbi sagði áður en ég fór út, því ég átti flug seinna um daginn var að ég ætti að passa mig á að detta ekki. ég komst sjálf uppí bíl, ræsti pabba út, og fékk far með sjúkrabíl yfir á Neskaupsstað þar sem ég var í rúman sólahring. Eitthvað hefur verið að passa mig, því þegar ég datt náði ég að hlífa höndunum og datt bara á vinstri mjöðm. Fór í röntgen, segulómdót og svona og var bara marin á vöðvum og mjúkvöðvum.. Já krakkar mínir, það getur borgað sig að hafa kjöt utaná sér! En á sjúkrahúsinu leið yfir mig þegar ég fór á klósettið og var ég sett með næringu í æð á "gjörgæslu" í herbergi við hliðina á hjúkkunum og var vakin á klukkutíma fresti til að taka lífsmark (púls og blóðþrýsting). Þar sem mér hafði verið tilkynnt að ég fengi ekki að fara á klósettið aftur, heldur þyrfti að nota klósettstól, þá var harkan tekin á þetta þegar ég vaknaði daginn eftir! Ég tók mér klukkutíma í að sitja og reyna að standa upp sem að lokum tókst. Fékk svo að fara heim og náði að sofa og daginn eftir þurfi ég að hringja í Rebekku til að komast uppúr rúminu þar sem ég gat ekki hreyft mig. Fór suður daginn eftir og gaf Höllu grænt ljós um að hún mætti fara að eiga litlu prinsessuna. Þess má geta að ég er skíthrædd við hesta núna, finnst folalda og hrossakjöt æðislega gott, og finn ennþá til í mjöðminni, þó verkurinn hafi minnkað til muna.Andrea Rán litla ljósið mitt fæddist svo 6.mars! 18.mars Keypti ég mér Skodalinginn minn fallega, lét svo setja í hann dökkar rúður og hátalara. í apríl og maí fór að dragast saman í vinnunni, þar sem fólk var farið að minnka að flytja inn bíla, sökum hækkandi tollgengis. Þegar jarðskjálftinn á suðurlandi kom, var ég að tala við Höllu í símann, og fann hann svo sjálf, rauk út í bíl, til þeirra og tók mæðgurnar með mér aftur í bæinn, ástandið var eins og ég veit ekki hvað, lögreglubílar, sjúkrabílar og þyrlur út um allt ! Ég fór heim á sjómannadaginn sem var geðveikt gaman! Man lítið hvað gerðist í sumar, var að vinna á Apótekinu skemmtistaðnum um helgar og fór austur um franska daga í júlí. um versló fór ég með Hössa og Aldísi á Akureyri  í ágúst var svo samningurinn minn hjá umferðarstofu að renna út og vissi ég að ég fengi ekki fastráðningu þar sem við vorum 3 í þessari deild og ekki voru næg verkefni fyrir einn. Þannig það fór eins og það fór en hins vegar voru þau svo æðisleg að ég mátti vera þar eins lengi og ég vildi, og mætti hætta um leið og ég gæti gengið inní næstu vinnu. Eftir þetta var ég að fara í afmæli til Dóru frænku og ákvað að taka mér 2gja vikna frí og skreppa austur. Fimmtudaginn áður en ég ætlaði suður aftur, 28.ágúst held ég, var hringt í mig og mér boðin vinnan hjá Alcoa sem ég hafði sóst eftir, og fékk ég hana og byrjaði á mánudegi. Föstudaginn fórum ég Ragnheiður og Rebekka í djammferð á Akureyri og var það helgin örlagaríka:/ Hóf ég svo störf hjá Alcoa Fjarðaáli 1.sept, sem hófst með 3gja vikna námskeiði. 18.september fór ég svo í starfsmannaferð með Umferðarstofu(árshátíðarferð) til London, og eyddi fullt af pening! Tók svo restina af dótinu mínu með mér austur úr RVK. Djammaði mikið eftir að ég flutti heim... Hrefna kom austur í okt og var ég eitthvað með þeim  23.okt minnir mig var mér hent út úr ríkinu í síðasta sinn!! (undir aldri  ) 8.nóvember varð ég svo 20 ára og hélt uppá það þrjá daga í röð, það var geggjað gaman! Matur á föstudeginum fyrir vinkonurnar, og partý hjá rebekku eftir það, Á laugardeginum bakaði ég og um kvöldið var afmælispartý heima hjá Rebekku og á sunnudeginum var kökuboð fyrir ættingja og vini. 2 næstu helgar var ég í Reykjavík að hitta móður og bræður. 14. nóvember fór ég á síðasta fyllerí, og ákvað að taka langa drykkjupásu eftir það, og varir hún enn! Og gengur bara fínt  Í kringum mánaðarmótin nóv/des fékk ég að vita að ég tek við annarri stöðu á skrifstofunni minni (sem ég er í núna) og fæ ég að vera hér til ca apríl 2010 Fyrir viku rúmri fékk ég svo sterasprautu í hægri öxlina, því hún er búin að vera að meiða mig, get varla verið að lyfta lengur  Og fékk að vita í gær að ég er send suður í rannsókn og má helst ekki lyfta. Vona að rannsóknin komi bara vel út, því í versta falli þarf að hefla beinið sem hljómar viðbjóðslega... það er sumsé eitthvað ekki nægt pláss sem þrengir að sin sem er vont.... En ég hef ekki tíma í það, er að byrja í bootcamp í janúar  Svo varð ég eitthvað lasin, svoooo voru bara jólin, strákarnir eru heima og svona  Og mikið að gera hjá mér í vinnunni, þetta er árið í hnotuskurn sem ég man núna meðan ég er að vinna og hlusta á ipodinn minn! Ef þú nenntir að lesa þetta þá klapp fyrir þér!  (þetta er myndin sem þakti desktop nokkurra tölva hér á skrifstofunni fyrir jól)  og fallegi bíllinn minn og bestu vinir mínir! smá kaldhæðnisleg mynd....
»
27.12.2008 05:26:29 / herdis
Gleðilega hátíð.
(held að ragnheiður sé sú eina sem les þetta.)
Takk fyrir mig allir sem sendu mér kort og pakka...
Fór ekki á ball áðan, fór upp í Egs, og rúntaði með skemmtilegu fólki meðan aðrir voru á balli eða fyrir utan, það var svo stappað og ég svooo edrú að ég var ekki í skapi fyrir það að troðast inn og vera í troðningi.
6.edrú helgin í röð að ganga í garð og þetta er piece of pie...
En jæja bara að vera leiðinleg og skrifa rugl... Ég og Mix fórum út að hlaupa í dag, það er mikið erfiðara að hlaupa með hund, hlupum út á mjóeyri og inní dal, stóra hringinn, það var hressandi! og í gær fórum ég og Ragnheiður og Mix, og í fyrradag fórum ég og Mix... Já Mix er nýji besti vinur minn! Í gærkvöldi tók ég mig til og bónaði drossíuna, já, ég gerði það ALEIN, ég bónaði bíl EIN í fyrsta skipti og skodalingurinn er svo glansandi fínn og sætur...
.... hefði ekki átt að taka brennslutöflur áður en ég fór út:/ er glaðvakandi...
En er farin að horfa á American dad, ætla víst að vakna uppúr hádegi á morgun og fara á Reyðó...
Ta ta...
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
Talning
Fyrir 419 dögum
Drakk síðast
Talning
Fyrir 264 dögum
Ég verð 21 árs
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 55586
|